Málsnúmer 2301112
Frístunda- og menningarnefnd - 124. fundur - 3.8.2023 00:00:00
Emilía Ósk Jóhannesdóttir formaður ungmenanráðs og Tómas Breki Bjarnason varaformaður ungmennaráðs ásamt Elínborgu Ingvarsdóttur forstöðumanns Þrumunnar og Melkorku Ýr Magnúsdóttur starfsmanni félagsmiðstöðvarinnar Þrumunnar sátu fundinn undir þessum lið.
Tillaga að vinnufyrirkomulagi sumarið 2023 lögð fram. Gert er ráð fyrir miklum breytingum á vinnuskólanum í sumar þar sem vinnustundum kemur til með að fækka auk þess sem nemendur fá úthlutað vinnutímabilum og því verða ekki allir árgangar við störf á sama tíma.
Lögð fram áskorun frá ungmennaráði um fjölgun vinnustunda í vinnuskólanum í sumar. Nefndin tekur vel í erindið og felur sviðsstjóra að útfæra breytingar á vinnufyrirkomulaginu.
Tillaga að vinnufyrirkomulagi sumarið 2023 lögð fram.
Fulltrúar úr ungmennaráði sitja fundinn undir þessum lið.