Málsnúmer 2301106
Bæjarráð Grindavíkur - 1656. fundur - undefined
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram bókun fræðslunefndar á 136. fundi, dags 12. október sl.:
Umræða um frístundaheimili með það að markmiði að brúa bilið milli leik- og grunnskólagöngu nemenda og aðlögun nemenda í grunnskóla. Fræðslunefnd felur sviðstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að kostnaðarmeta verkefnið og tímasetja aðgerðaráætlun. Einnig felur fræðslunefnd sviðstjóra að gera ráð fyrir fjármagni fyrir verkefninu í fjárhagsáætlun 2024. Málinu vísað til umfjöllunar í bæjarráð.
Bæjarráð samþykkir erindið og felur sviðsstjóra frístunda- og fræðslusviðs að koma með tillögur inn í drög að fjárhagsáætlun 2024.
Umræða fór fram á fundi fræðslunefndar um frístundaheimili með það að markmiði að brúa bilið milli leik- og grunnskólagöngu nemenda og aðlögun nemenda í grunnskóla. Fræðslunefnd felur sviðstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs að kostnaðarmeta verkefnið og tímasetja aðgerðaráætlun. Einnig felur fræðslunefnd sviðstjóra að gera ráð fyrir fjármagni fyrir verkefninu í fjárhagsáætlun 2024.
Málinu vísað til umfjöllunar í bæjarráð.