Málsnúmer 2301068
Bæjarráð Grindavíkur - 1637. fundur - 3.7.2023 00:00:00
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra til Orkustofnunar, dags. 27.02.2023, varðandi orkuöryggismál á Suðurnesjum.
Orkustofnun vinnur að minnisblaði um orkuöryggismál á Suðurnesjum í ljósi alvarlegrar bilunar í eldingarvara í tengivirki Landsnets með þeim afleiðingum að rafmagnslaust var í tæpar 3 klukkustundir á Suðurnesjum. Óskað var eftir upplýsingum varðandi málið frá Grindavíkurbæ.