Málsnúmer 2301011
Skipulagsnefnd - 112. fundur - 1.9.2023 00:00:00
Vegagerðin óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda við sjóvarnir í Grindavík fyrir eftirfarandi verk:
- Sjóvörn sunnan Grindavíkurhafnar, styrking og hækkun.
- Sjóvörn við Litlubót, endurbygging og hækkun.
- Sjóvörn við golfvöll, styrking og hækkun.
- Sjóvörn vestan Gerðistangi, framlenging.
Framkvæmdin er í samræmi við Aðalskipulag Grindavíkur. Skiplagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdarleyfisins með fyrirvara um jákvæða umsögn umhverfisstofnunar.
Vegagerðin sækir hér með um framkvæmdarleyfi til Grindavíkurbæjar fyrir eftirfarnadi verk:
- Sjóvörn sunnan Grindavíkurhafnar, styrking og hækkun.
- Sjóvörn við Litlubót, endurbygging og hækkun.
- Sjóvörn við golfvöll, styrking og hækkun.
- Sjóvörn vestan Gerðistangi, framlenging.
Óskað er eftir að sveitarfélagið staðfesti að Vegagerðin hafi heimild til að ráðast í ofangreindar framkvæmdir og gengið verði úr skugga um að þær samrýmist skipulagi. Meðfylgjandi eru útboðs- og verklýsing ásamt teikningum. Sjóvarnirnar voru ákvarðaðar og teknar inn í samgönguáætlun í samráði við sveitarfélagið og samkvæmt erindi sem barst frá sveitarfélaginu. Áætlaður verktími er frá janúar til október 2023.