Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2212075

Bæjarstjórn Grindavíkur - 536. fundur - 1.3.2023 00:00:00


Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Birgitta Hrund, Hallfríður og Hjálmar.

Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 29.12.2022 þar sem vakin er athygli á breytingum laga er snúa að sorpmálum.


Borist hefur erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Þar kemur fram að um áramótin taki gildi lagabreytingar þar sem sveitarfélögum er gert að koma því þannig fyrir að innheimta verði sem næst raunkostnaði fyrir meðhöndlun úrgangs og að fast gjald skuli takmarkast við 50% til ársins 2025 og 25% eftir það. Þessar breytingar þýða að flest sveitarfélög þurfa að aðlaga gjaldskrár sínar og innheimtukerfi. Sveitarfélög þurfa að taka skref frá því að nota kerfi sem reiknar og innheimtir fast gjald, í að nota kerfi sem er sniðið að því magni og tegund úrgangs sem hver og einn lætur frá sér.