Málsnúmer 2212054
Skipulagsnefnd - 111. fundur - undefined
Samherji fiskeldi ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir seiðahúsi við bleikjueldið á Stað. Skipulagsnefnd staðfestir að byggingaráformin eru í samræmi við skipulag.
Þar sem byggingaráformin eru í samræmi við skipulag á svæðinu þá er um fullnaðarafgreiðslu skipulagsnefndar að ræða með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022.
Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Samherji sækir um byggingarleyfi fyrir Seiðahúsi við bleikjueldið á Stað vestan Grindavíkur. Byggingin er staðsteypt með yleiningar á þaki. Stærð er 2.743,1 m2.