Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2212021

Skipulagsnefnd - 122. fundur - undefined


Hrannar Jón Emilsson vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.

Þorbjörn ehf. óskar eftir breytingu á byggingarleyfisumsókn vegna byggingaráforma við Hafnargötu 20-22. Um er að ræða breytingu á byggingarleyfisumsókn sem skipulagsnefnd tók upphaflega fyrir þann 19.12.2022. Breytingin er að geymsla við Hafnargötur 20-22 stækkar um 59,4 m2 skv. framlögðum teikningum.

Skipulagsnefnd staðfestir að byggingaráformin eru í samræmi við skipulag. Þar sem byggingaráformin eru í samræmi við skipulag á svæðinu þá er um fullnaðarafgreiðslu skipulagsnefndar að ræða með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022. Byggingarfulltrúi tekur við málinu í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012.


Þorbjörn ehf. óskar eftir breytingu á byggingarleyfisumsókn vegna byggingaráforma við Hafnargötu 20-22. Skipulagsnefnd tók upphaflega umsókn fyrir þann 19.12.2022 og staðfesti þá að áformin væru í samræmi við skipulag.