Málsnúmer 2212006
Skipulagsnefnd - 110. fundur - 12.5.2022 00:00:00
Samherji fiskeldi sækir um óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Stað vestan Grindavíkur. Sótt er um stækkun á byggingarreit um 263 m2. Samþykki landeiganda fyrir deiliskipulagsbreytingunni liggur fyrir.
Skipulagsnefnd samþykkir að um óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Stað sé að ræða. Í ljósi þess að samþykki landeiganda liggur fyrir fellur skipulagsnefnd frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar ekki aðra en sveitarfélagið og umsækjanda ( sbr. 3 mgr. 44 gr. skipulagslaga nr. 123/2010).
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna. Í samræmi við viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Skipulagsfulltrúa er falið að afgreiða skipulagsbreytinguna til Skipulagsstofnunar í samræmi við skipulagslög.
Samherji fiskeldi sækir um óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Stað vestan Grindavíkur. Sótt er um stækkun á byggingarreit um 263 m2. Leyfi landeiganda liggur fyrir.