Málsnúmer 2211106
Skipulagsnefnd - 118. fundur - 4.3.2023 00:00:00
Tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu við Seljabót 2a var grenndarkynnt á heimasíðu Grindavíkurbæjar þar sem íbúum gafst kostur á á að gera athugasemdir á tímabilinu 2. mars 2023 til og með 30. mars 2023. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd taldi það mikilvægt að kynna deiliskipulagstillöguna á heimasíðu sveitarfélagsins en taldi ekki þörf á grenndarkynningu fyrir ákveðnum lóðarhöfum í kring þar sem tillagan víkur að litlu leyti frá þeirri notkun, formi og útliti sem þegar er á svæðinu.
Hafnarstjóri og hafnarstjórn hafa fengið kynningu á tillögunni en höfnin hefur lagt áherslu á að tryggt verði að bílastæði á svæðinu nýtist sem best. Samkvæmt tillögunni verða 26 bílastæðinu á lóðinni sem nýtast höfninni.
Skipulagsnefnd samþykkir á fundinum að gera þá breytingu að stækka byggingarreitinn fyrir dælustöðina lítillega eða um 55 fermetra, er það gert til að beiðni hönnuða dælustöðvarinnar sem ætlunin er að framkvæmdir hefjist við sumarið 2023. Lóðin Seljabót 2a er 4073 fermetrar að stærð, nýtingarhlutfallið var 0.04 og verður 0.10, þ.e. heimild verður að byggja um 400 m2 á lóðinni.
Skipulagsnefnd samþykkir skipulagstillöguna með þeim áorðnum breytingu sem kynntar eru hér að framan. Í samræmi við 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Skipulagfulltrúa er falið að afgreiða deiliskipulagstillöguna í samræmi við skipulagslög.
Skipulagstillagan var grenndarkynnt á heimasíðu Grindavíkurbæjar þar sem gefin var frestur til og með 30. mars til að gera athugasemd. Hafnstjórn hefur ekki fjallað um tillöguna en ekki hefur verið fundur síðan skipulagsnefnd fjallaði um tillöguna í febrúar.