Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2211078

Bæjarstjórn Grindavíkur - 535. fundur - undefined


Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund og bæjarstjóri.

Með vísan til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í fyrirliggjandi samkomulagi á milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 16.12.2022, er byggir á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 16.12.2022, samþykkir bæjarstjórn samhljóða að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2023 hækki um 0,22 prósentustig og verði því 14,62%.


Borist hefur erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem tilkynnt er um samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um kostnaðarskiptingu varðandi þjónustu við fatlað fólk og hækkun útsvarsálagningar. Sveitarstjórnir þurfa að samþykkja og tilkynna fjármálaráðuneytinu í síðasta lagi 30. desember nk. hækkun útsvarsálagningar um 0,22% stig ef þau ætla koma skaðlaus frá því að þetta sama hlutfall verði tekið af heildarútsvarsálagningu sveitarfélagsins og látið renna í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Útsvarsálagningin hækkar því úr 14,40% í 14,62%.

Þar sem að ríkið mun lækka tekjuskattsálagningu sína um samsvarandi hlutfall munu skattgreiðendur ekki verða fyrir skattahækkun eða lækkun vegna þessa, að því gefnu að sveitarfélög hækki útsvarsálagninguna.