Málsnúmer 2211068
Bæjarstjórn Grindavíkur - 534. fundur - undefined
Til máls tók: Ásrún.
Sveitarfélögin veita Sambandi íslenskra sveitarfélaga umboð til kjarasamninga vegna hvers og eins stéttarfélags sem starfsmenn þess eiga aðild að. Endurnýja þarf kjarasamningsumboð til samræmis við núverandi stöðu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela Sambandi íslenskra sveitarfélaga fullnaðarumboð til kjarasamningagerðar fyrir sína hönd við tilgreind stéttarfélög. Jafnframt er bæjarstjóra falið að rita undir samkomulag um kjarasamningsumboð.
Kjarasamningsumboð og launaupplýsingar til Sambandsins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja skjölin.