Málsnúmer 2211052
Bæjarstjórn Grindavíkur - 533. fundur - undefined
Til máls tók: Ásrún.
Óveruleg breyting á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032 vegna iðnaðarsvæðisins i7 lögð fram.
Breytingin er gerð vegna þess að við vinnslu endurskoðaðs aðalskipulags 2018-2032, láðist að færa inn breytingar um stærð svæðisins og viðbótarskilmála, sem áður höfðu verið gerðar á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 fyrir iðnaðarsvæði i7. Deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið sem byggir á þeirri aðalskipulagsbreytingu sem er frá 2016.
Skipulagsnefnd samþykkti að farið verði væri með skipulagstillöguna í samræmi við 2. málsgr. 36. gr. skipulagslaga nr 123/2010 og vísaði henni til bæjarstjórnar á fundi sínum 21. nóvember 2022.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillöguna.
Óveruleg breyting á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar lögð fram. Breytingin er gerð vegna þess að við vinnslu endurskoðaðs aðalskipulags 2018-2032, láðist að færa breytingar sem áður höfðu verið gerðar á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 fyrir iðnaðarsvæði i7. Erindið var tekið fyrir á fundi skipulagsnefndar þann 21. nóvember sl.