Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2210064

Bæjarráð Grindavíkur - 1631. fundur - undefined


Ívar Pálsson, lögmaður hjá Landslögum, sat fundinn undir þessum dagskrárlið í gegnum Teams.

Bæjarráð Grindavíkur gerir ekki athugasemd við að veitt verði rekstrarleyfi fyrir hóteli að Víkurbraut 58, í samræmi við umsókn, svo fremi sem fyrir liggi jákvæðar umsagnir Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, slökkviliðsstjóra og að byggingarfulltrúi staðfesti að lokaúttekt hafi farið fram. Bæjarráð bendir þó á að starfsleyfi Heilbrigðiseftirlits, sem veitt var þann 8. desember sl., gildir bara í eitt ár þ.e. til 8. desember 2023 vegna myglu sem kom upp í húsnæðinu.

Að gefnu tilefni telur bæjarráð rétt að árétta að í afgreiðslu bæjarráðs felst ekki heimild til þess að reka í húsnæðinu starfsemi eða útleigu húsnæðis fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd eða flóttamenn. Slík starfsemi samræmist að mati bæjarráðs ekki samþykkri notkun hússins og er í andstöðu við landnotkun skv. aðal- og deiliskipulagi.


Farið yfir samskipti við Vinnumálastofnun vegna fyrirhugaðrar leigu á Víkurbraut 58 fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.