Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2210063

Bæjarstjórn Grindavíkur - 533. fundur - undefined


Til máls tók: Ásrún.

Lögð fram til samþykktar þjónustugjaldská Slökkviliðs Grindavíkur fyrir árið 2023.

GJALDSKRÁ
Slökkviliðs Grindavíkur

Almennt.
1. gr.
Verkefni Slökkviliðs Grindavíkur ákvarðast af lögum um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum og reglugerðum settum samkvæmt þeim.
2. gr.
FSG innheimta ferða- og uppihaldskostnað í samræmi við reglur ferðakostnaðarnefndar fjármála og efnahagsráðuneytisins.
3. gr.
Slökkviliðsstjóra er heimilt að fella niður gjald vegna starfsemi ef verkefni telst þjóna almannahagsmunum.
Lögbundin verkefni.
4. gr.
Sé ákvæðum 2. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum beitt skal
eigandi eða umráðamaður mannvirkis eða lóðar bera kostnað samkvæmt gjaldskrá af eftirliti með því
að farið hafi verið að kröfum um úrbætur samkvæmt 3. mgr. 29. gr. sömu laga. Einnig er heimilt að
taka gjald fyrir öryggis- og lokaúttektir samkvæmt 2. mgr. 12. gr. sömu laga.
Lágmarksgjald er 25.400 kr.
Fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns er 12.700 kr.

Eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar.
5. gr.
Fyrir hverja endurkomu vegna eftirlits og eftirfylgni kröfugerðar skal tekið fast gjald, 25.400 kr. Fyrir aðra vinnu við eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar skulu innheimtar 12.700 kr fyrir hverja byrjaða klukkustund. Þegar eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar á sér stað utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru innheimtar 45.950 kr., auk 12.700 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvo tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr.29. gr. laga um brunavarnir.



Öryggisvaktir á mannvirki.
6. gr.
Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna öryggisvakta eftir að eiganda eða
forráðamanni hefur verið tilkynnt ákvörðun slökkviliðsstjóra um að öryggisvakt skuli sett á
viðkomandi húseign. Á það jafnframt við um tilfallandi vaktir vegna tímabundinna viðburða þar sem
fullum eldvörnum verður ekki við komið eða á meðan unnið er að úrbótum á þeim.
Innheimtar eru að lágmarki 51.360 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 12.700 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma.
Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 30. gr. laga um brunavarnir.

Lokun mannvirkis.
7. gr.
Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna lokunar mannvirkis eftir að eiganda eða forráðamanni hefur verið tilkynnt ákvörðun slökkviliðsstjóra um að loka skuli viðkomandi mannvirki. Innheimtar eru 12.700 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.
Þegar um lokunaraðgerðir er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru innheimtar 51.360 kr., auk 12.700 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 32. gr. laga um brunavarnir.
Dagsektir.
8. gr.
Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til frá og með ákvörðun slökkviliðsstjóra um
dagsektir og þar til kröfum um úrbætur á eldvörnum hefur verið fullnægt. Innheimtar eru 12.700 kr.
fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku
byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.






Öryggis- og lokaúttektir.
9. gr.
Innheimt er fyrir alla vinnu sem fellur til vegna öryggis- og lokaúttektar, að lágmarki 25.400 kr.
Fyrir stærri úttektir skulu að auki innheimtar 12.700 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvo
tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga
um brunavarnir.
Eftirfylgni útkalla vegna brunaviðvörunarkerfa.
10. gr.
Sé slökkvilið kallað út vegna boða frá sjálfvirku brunaviðvörunarkerfi án þess að eldur sé laus, skal innheimt fyrir kostnaði af eftirliti með því að gerðar séu nauðsynlegar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir endurtekin falsboð.
Innheimt er fast gjald fyrir tvær klukkustundir, 25.400 kr., fyrir eftirlitið. Leiði það hins vegar til
frekara eftirlits, vegna ítrekaðra falsboðana eða alvarlegra ágalla á brunavörnum, fellur það undir
eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar sbr. 5. gr. þessarar gjaldskrár og er þá innheimt samkvæmt því.
Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.

Umsagnir.
11. gr.
Umsagnir slökkviliðsstjóra til einkaaðila eða annarra stjórnvalda eru ekki fyrirskrifaðar í lögum
um brunavarnir. Umsagnir til annarra stjórnvalda eru þó eftir atvikum áskildar í lögum um aðra málaflokka og reglugerðum settum samkvæmt þeim. Innheimt er fast gjald, 12.700 kr.
Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru innheimtar 51.360 kr., auk 12.700 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.
Önnur verkefni og þjónusta.
12. gr.
Slökkviliðið sinnir öðrum verkefnum sem eru ekki skilgreind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum. Þessi verkefni falla þó að tilgangi slökkviliðsins sem er að vinna að velferð íbúa aðildarsveitarfélaga samkvæmt stofnsamningi, séu þau ekki falin öðrum til úrlausnar í lögum né framkvæmd í samkeppni við aðra aðila. Því ber að taka gjald fyrir veitta þjónustu.
Fast tímagjald samkvæmt 4. gr. fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns er 12.700 kr. fyrir lögbundin verkefni. Að teknu tilliti til samkeppnissjónarmiða, þjálfunar, virkjunartíma og þess að þjónustan er aðgengileg allan sólarhringinn. Allt árið er fast tímagjald fyrir byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns sem ekki er skilgreind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum 25.400 kr., nema annað sé sérstaklega tekið fram. Þar sem um sérstakan viðbúnað að ræða, sbr. 14.-17. gr., er að lágmarki innheimt fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir eða 203,200 kr.

Ráðgjafaþjónusta.
13. gr.
Falli ráðgjafavinna undir ákvæði stjórnsýslulaga um upplýsinga- og leiðbeiningaskyldu skal sú vinna undanþegin gjaldi. Ef ráðgjafavinnan er fyrir utan ákvæði d-liðar 1. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir, um leiðbeiningar til fyrirtækja og stofnana eftir atvikum um hvaðeina er varðar brunavarnir og eldsvoða vegna viðkomandi starfsemi, er þjónustan gjaldskyld.
Innheimtar eru 25.400 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir
verkefninu.
Fylgd vegna sprengiefnaflutninga.
14. gr.
Sprengiefnafylgd er ekki áskilin í lögum um brunavarnir heldur er kveðið á um slíka fylgd í lögreglusamþykkt og veitir lögreglustjóri ekki heimild til flutnings nema í fylgd slökkviliðs. Innheimtar eru að lágmarki 45.950 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 12.700 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma.

Viðbúnaður vegna eldsvoða og mengunaróhappa.
15. gr.
Í 2. gr. laga um brunavarnir, kemur fram að lögin gilda um eldvarnir og slökkvistörf vegna eldsvoða og viðbúnað við mengunaróhöppum á landi nema kveðið sé á um annað í lögum. Þau gilda enn fremur um björgun á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farartækjum með sérhæfðum björgunarbúnaði. Lögin ná til starfsemi slökkviliða á landi, þ.m.t. slökkvistarfa í jarðgöngum, í skipum sem liggja í höfn og loftförum sem eru á jörðu niðri.
Slökkvistörf og viðbúnaður við mengunaróhöppum á sjó og í lofti falla hins vegar ekki undir lögin, né heldur eldvarnir í skipum með haffærisskírteini, loftförum, almennum vinnuvélum, bifreiðum eða öðrum vélknúnum ökutækjum. Slökkviliðsstjóri metur það hverju sinni hvort sinna skuli umbeðnum verkefnum sem liggja fyrir utan gildissvið laganna.
Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni slíku ólögboðnu verkefni skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal að lágmarki 170.520 kr., auk 25.400 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund.

Viðbúnaður vegna upphreinsunar.
16. gr.
Upphreinsun sem fellur ekki undir skilgreiningu 3. gr. laga um brunavarnir, á mengunaróhappi er sinnt af slökkviliði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna.
Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 170.520 kr., auk 25.400 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

Viðbúnaður vegna verðmætabjörgunar og vatnsleka.
17. gr.
Verðmætabjörgun sem ekki er tilgreind í lögum um brunavarnir, t.d. vegna vatnsleka, er sinnt af
slökkviliði, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna.
Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal
lágmarksgjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um
annað. Innheimta skal að lágmarki 170.520 kr., auk 25.400 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir
hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

Tækjaleiga.
18. gr.
Tækjaleiga er ekki fyrirskrifuð í lögum um brunavarnir. Þó er eðlilegt að leigja tæki sem eru þess eðlis að ekki er hægt að leigja þau hjá öðrum aðilum eða ef aðstæður kalla á skjóta notkun sem aðrir aðilar geta ekki boðið.
Verðlagning er ákveðin þannig að hún sé ávallt í það minnsta 35% hærri en leiga á svipuðum eða
sambærilegum tækjum sem aðrir geta útvegað til að tryggja samkeppnissjónarmið. Oftast er um að
ræða dælu- eða körfubíla, t.d. vegna kvikmyndagerðar eða einhverrar uppákomu sem kallar á slíkan
búnað. Verðlagningu á tækjum skal endurskoða við hverja breytingu á gjaldskrá þessari.
Tæki FSG skulu aðeins notuð af starfsmönnum slökkviliðsins. Innheimtar eru að lágmarki 45.950 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 12.700 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma, auk tækjaleigu.
Annað.
19. gr.
Innheimt skal gjald fyrir aðra vinnu sem ekki er tilgreind hér og ekki er mælt fyrir um í lögum. Innheimt er fyrir tæki samkvæmt 18. gr. og að lágmarki 50.800 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 25.400 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma.
Getur þetta átt við um þjónustu vegna sérstakra verkefna eins og kvikmyndatöku, móttöku erlendra þjóðhöfðingja eða sendimanna, menningarviðburða o.fl. þess háttar.

Innheimta.
20. gr.
Grindavíkurbær annast innheimtu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari. Um innheimtu gjalda skal fara eftir viðteknum venjum í innheimtu opinberra stofnana. Gjalddagi gjalda samkvæmt gjaldskránni er útgáfudagur reiknings og eindagi er 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga.
Gjöld sem til eru komin vegna öryggis- og lokaúttekta, sem og aðgerða til að knýja fram úrbætur samkvæmt lögum, sbr. 5. gr. t.o.m. 10. gr., fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð, sbr.
3. mgr. 12. gr. og 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum.

Gildistaka og lagastoð.
21. gr.
Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í lögum nr. 75/2000 með síðari breytingum og reglugerðum settum samkvæmt þeim. Gjaldskráin var samþykkt á xx. fundi Bæjarstjórn Grindavíkur þann xx.
Gjaldskráin öðlast gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda og fellur þar með úr gildi gjaldskrá nr. 259/2018.


Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrána samhljóða.


Lögð fram uppfærð þjónustugjaldská Slökkviliðs Grindavíkur fyrir árið 2023. Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.