Málsnúmer 2209099
Skipulagsnefnd - 108. fundur - 11.7.2022 00:00:00
Lilja Sigmarsdóttir vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.
Á fundi skipulagsnefndar nr. 107 var málinu frestað og skipulagsfulltrúa falið að ræða við umsækjanda um innkomna athugasemd frá lóðarhafa við Arnarhlíð 5. Uppfærð tillaga lögð fram þar sem tekið hefur verið tillit til athugasemdar. Samþykki lóðarhafa við Arnarhlið 5 við uppfærða tillögu liggur fyrir.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna. Í samræmi við 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Skipulagfulltrúa er falið að afgreiða deiliskipulagstillöguna í samræmi við skipulagslög.
Skipulagsnefnd vekur athygli lóðarhafa/umsækjanda á eftirfarandi: Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.
Á fundi skipulagsnefndar nr. 107 var málinu frestað og skipulagsfulltrúa falið að ræða við umsækjanda um innkomna athugasemd. Uppfærð tillaga lögð fram þar sem tekið hefur verið tillit til athugasemdar.