Málsnúmer 2209058
Bæjarstjórn Grindavíkur - 533. fundur - undefined
Til máls tók: Ásrún
Þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar fyrir árið 2023 send bæjarstjórn til staðfestingar.
Þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar 2023
I. Almenn ákvæði
1. grein
Gjaldskrá þessi fyrir Grindavíkurhöfn er sett skv. heimild í 17. grein hafnalaga nr.
61/2003, sbr. bráðabirgðaákvæði nr. 1.
Gjaldskráin er við það miðuð að Grindavíkurhöfn geti haft nægar tekjur til þess að standa undir rekstri hafnar sbr. 5. tölulið 3. gr. hafnalaga., Þ.m.t. fjármagnskostnaði, afskriftum, kostnaði við endurnýjun hafnarinnar og stofnkostnaði samkvæmt lágtímaáætlun hafnarinnar.
II. Um gjaldtöku tengdri stærð skipa
2. grein
Við ákvörðun hafnagjalda samkvæmt stærð skipa skal miða við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælibréfi, sem gefið er út eftir ákvæðum alþjóðasamþykktarinnar um mælingu skipa frá 1969.
3. grein
Af öllum skipum skal greiða hafnagjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar og njóta þjónustu hennar.
III. Skipa- og aðstöðugjöld
4. grein
Lestagjöld
Af öllum skipum skal greiða lestagjald, kr. 20.0 á mælieiningu skv. 2. gr. en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði.
Undanþegin greiðslu lestargjalds eru herskip, varðskip og skip sem gerð eru út til vísindalegra rannsókna, svo og skip sem leita hafnar vegna sjóskaða eða til að láta í land sjúka menn eða látna, svo fremi að þau fái ekki aðra þjónustu.
Bryggjugjöld
Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða kr. 10,7 á mælieiningu skv. 2. gr. fyrir hverja byrjaða 24 tíma sem skipið liggur bundið við bryggju.
Heimilt er að taka lesta- og bryggjugjald af fiskiskipum og minni bátum, sem mánaðargjald, kr. 123,2, á mælieiningu fyrir báta 21-50 BT, þó aldrei lægra en kr. 16.013 á mánuði.
Bátar minni en 20 BT greiði þó aldrei lægra en kr. 8.711 á mánuði, og lágmark kr. 399 daggjald í 20 daga.
Gjald fyrir einkalegu við flotbryggju er kr. 1.654 á mánuði.
Aðstöðugjald fyrir olíudælur og eldsneytistanka 16.013 á mánuði.
Gjald fyrir legu erlendra skemmtibáta og skútna er ? 88 að lágmarki fyrir hverja byrjaða viku
Heimilt er að leggja á allt að fimmföld bryggjugjöld á skip og báta sem liggja um lengri tíma við bryggju og hafa verið á haffærisskírteinis í a.m.k. 6 mánuði.
IV. Vörugjöld
5. grein
Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr
landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnarinnar, þó með þeim
undantekningum er síðar getur.
6. grein
Fyrir vörur sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til annarrar hafnar,
innlendrar eða erlendrar, en eru látnar á land um stundarsakir, skal aðeins greitt
vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land.
Undanþegnar þessu gjaldi eru vörur sem látnar eru á land um stundarsakir vegna
skemmda á skipi.
7. grein
Af vörum sem fluttar eru á skip og fara eiga til annarra hafna innanlands greiðist
hálft vörugjald.
Af vörum sem fara eiga til útlanda en umskipað er í innlendri höfn skal greiða
fullt vörugjald í fyrstu lestunarhöfn.
8. grein
Þessar vörur eru algjörlega undanþegnar vörugjaldi:
a. Umbúðir sem endursendar eru.
b. Kol, olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar.
c. Almennar póstsendingar og farangur ferðamanna.
d. Úrgangur sem fluttur er til eyðingar.
9. grein
Vörugjald skal reikna eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega.
Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóra eða
afgreiðslumanni skips er skylt að láta gjaldkera hafnarinnar í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnarstjóra ástæða
til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur
hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn.
Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðað skal reikna vörugjaldið eftir
þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.
10. grein
Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:
1. fl.: Gjald kr. 436.2 pr. tonn:
Bensín, brennsluolíur, kol, laust korn, salt, vikur, kísilgúr, þörungamjöl, sement, áburður og úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu.
2. fl.: Gjald kr. 740,3 pr. tonn:
Lýsi og fiskimjöl.
3. fl.: Gjald kr. 7797,9 pr. tonn:
Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, útgerðarvörur, smurningsolíur, sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda, pökkuð og niðursoðin matvæli, óáfengar drykkjarvörur og ávextir.
4.fl.: Gjald kr. 2.049,5 pr. tonn. Aðrar vörur en tilgreindar eru í 1-3 fl.
5. fl.: Gjald 1,6%.
Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða
brottflutnings, þ.m.t. fiskur og seiði úr eldiskvíum. Gjaldið reiknast af
heildarverðmæti aflans. Gjald af frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast af helmingi heildarverðmætis.
Gjald af saltfiski reiknast miðað við tvöfalda þyngd og gjald af gámafiski reiknast af áætluðu heildarverði. Kaupanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um keyptan afla mánaðarlega, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Við sölu afla til skyldra aðila samkv. 3. mgr. 9.greinar laga nr. 13/1998 um Verðlagsstofu skiptaverðs úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna skal að lágmarki miðað við skiptaverð Verðlagsstofu skiptaverðs. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað. Kaupandi aflans innheimtir gjaldið hjá seljanda og er ábyrgur fyrir því til hafnarsjóðs þótt hann vanræki innheimtu þess. Standa ber skil á greiðslu aflagjalds eigi sjaldnar en mánaðarlega.
V. Farþegagjald
11. grein
Farþegagjald skal tekið við komu og brottför farþega um Grindavíkurhöfn.
Farþegagjald fyrir hvern fullorðinn með farþegabátum kr. 191,0
Farþegagjald fyrir hvert barn með farþegabátum kr. 94,9
Farþegabátar skulu skila skýrslu um fjölda farþega einu sinni í mánuði.
VI. Lóðagjöld og lóðarleiga
12. grein
Almenn regla:
Lóðagjöld eru kr. 11.466 á m2 auk virðisaukaskatts. Lóðargjald miðast við staðsetningu og stærð lóðarinnar. Lóðargjaldið er bundið byggingarvísitölu og hækkar mánaðarlega í samræmi við hana. Grunnvísitala til útreiknings er byggingarvísitala í janúar 2021. Lóðarleiga skal vera 2% af lóðarmati hverrar lóðar.
Frávik frá reglu þessari byggist á sérstöku samkomulagi við stærstu lóðarhafa.
VII. Móttaka skipa
13. grein
Hafnsögugjöld skulu greidd samkvæmt eftirfarandi gjaldskrá:
a) Fyrir leiðsögu til hafnarinnar skal greiða kr. 13.420 fyrir hvert skip,
auk 9,3 kr. fyrir hvert brúttótonn. Fyrir leiðsögu úr höfninni greiðist sama gjald.
b) Fyrir leiðsögu um höfnina skal greiða hálft gjald samkvæmt lið a.
c) Fyrir hverja komu flutningaskips sem fellur undir hafnarvernd skal greiða kr. 73.202 í öryggisgjald.
Starfsmenn hafnarinnar eða aðrir menn sem höfnin leggur til að standa hliðvörð við skip meðan á afgreiðslu stendur og skal innheimt gjald hjá útgerð skipsins sem nemur kr. 10.980 fyrir hverja klukkustund.
Tímakaup hliðvarðar á stórhátíðisdögum og sérstökum frídögum pr. klst. kr. 14.775
Lágmarkstími útkalls er 4 klst.
Festargjald fyrir hverja afgreiðslu með einum manni er kr. 20.497. Séu notaðir fleiri en einn maður er gjald fyrir hvern aukamann kr. 20.497
Festargjald í yfirvinnu fyrir hvern mann er kr. 32.504
Festargjald á stórhátíðisdögum fyrir hvern mann er kr. 81261,4
VIII. Þjónusta dráttarbáts
14. grein
1. Skip á leið inn til hafnar eða út sem nýtur aðstoðar hafnsögumanna greiðir pr. klst. kr. 67.102 fyrir hafnsögubát hafnarinnar.
2. Fyrir aðstoð utan hafnar og verkefni, önnur en björgunaraðgerðir skal greiða kr. 87.526 á klst. miðað við að 2 séu í áhöfn dráttarbáts. Tímagjald reiknast frá því lagt er úr höfn og þar til komið er til heimahafnar aftur.
3. Fyrir björgun eða aðstoð við skip og báta samkv. samningi SFS og tryggingarfélaga.
4. Gjaldskráin gildir fyrir bátinn með áhöfn. 20% álag greiðist á alla taxta á yfirvinnutíma og um helgar og 100% ef unnið er á stórhátíðardögum og sérstökum frídögum.
5. Lágmarkstími fyrir aðstoð er 1 klst. fyrir hafnsögubát en 4 klst. pr. mann í áhöfn.
IX. Vatns-, rafmagns- og löndunarkranagjöld og búnaðarleiga
15. grein
1. Vatnsgjöld: Kalt vatn kr/m3 kr. 340
2. Heitt vatn kr/m3 kr. 1098. Lámarksgjald er fyrir 3 tonn
3. Kalt vatn smábáta pr. löndun kr.169
4. Rafmagnssala: Rafmagnsnotkun kr/kwst kr. 22,3
5. Rafmagnssala: lámarksgjald fyrir erlenda skemmtibáta og skútur ? 15 fyrir hvern byrjaðan sólarhring
6. Rafmagnsmælaskilagjald kr./mælir kr. 35.178 Hér kemur leiga rafmagnstafla 500 kr pr. sólarhring en þó að lámarki kr. 3.500 (viðbót)
7. Tengigjald 16 amper kr. 3.660
8. Tengigjald dagvinna kr. 3.660
9. Yfirvinnuútkall hafnarvarðar pr. klst. kr. 8.052
10. Tímakaup hafnarvarðar á stórhátíðsdögum og sérstökum frídögum pr. klst. kr. 16.105
11. Lágmarkstími útkalls er 4 klst.
12. Löndunarkranalyklar skilagjald 3.815 (viðbót)
13. Löndunarkranagjald 0,1 ? 2.000 kg. / löndun kr. 992
14. Löndunarkrani tonnagjald 2.000 kg og yfir kr. pr tonn 447
15. Leiga á ISPS öryggisgirðingum pr. ein kr. 500 fyrir hvern byrjaðan sólarhring. (viðbót)
X. Vogargjöld
16. grein
1. Almenn vigtun kr. pr. tonn kr 268.8
2. Skráningargjald fyrir skráningu í Gaflinn pr. tonn kr. 140,6
3. Skráningargjald í Gaflinn bræðslufiskur kr. pr. tonn kr. 26,2
4. Lægsta gjald fyrir einstaka vigtun kr. pr tonn 1.464
5. Vigtar- og skráningargjald Fiskmarkað kr. pr tonn kr. 293,2
6. Yfirvinnuútkall eftir kl.17 og um helgar kr. pr klst. 8052
7. Ef óskað er eftir vigtun á stórhátíðardögum eða sérstökum frídögum er gjald pr. klst. kr. 16.105
8. Lágmarkstími útkalls er 4 klst.
XI. Sorphirðugjöld. vegna úrgangs, skólps mengandi efna og farmleifa frá skipum.
17. grein
1. Skip minni en 10 BT kr./mán. 989
2. Skip 10 - 24 BT kr./mán. 3.500
3. Skip 25 ? 99 BT kr./mán. 5.494
4. Skip 100 - 199 BT kr./mán. 8.526
5. Skip stærri en 200 BT samtals 200 kg í einingu á 50 kr./ kg. Samtals kr./ein. 11.690
6. Hámarksfjöldi eininga er 10 á mánuði.
7. Þrátt fyrir ákvæði um einingar hér að ofan er heimilt að vigta sorp frá skipi og haga gjaldtöku samkvæmt vigt séu veiðarfæri og annað sem ekki getur talist venjulegt sorp frá skipi sett í gámana.
Vegna skipa sem falla undir grein 11 c. í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33 frá 2004 skulu skip greiða eftirfarandi:
a) Úrgangsgjald: Við komu skips til hafna skal skip greiða 3,4 kr. pr BT. Gjald þetta er til þess að standa undir eftirliti og umsýslu hafnar vegna móttöku á sorpi. Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er kr. 8.053 og hámarksgjald kr. 64.521.
b) Úrgangsgjald: Gjald skv. staflið a. má lækka ef umhverfisstjórnun, hönnun, búnaður og starfsemi skips er með þeim hætti að skipstjóri geti sýnt fram á að minni úrgangur verði til um borð. Fast gjald verður þá 1 kr. á brt. Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er kr. 6426 og hámarksgjald kr. 30.781.
c) Úrgangsgjald: Skip og bátar sem koma oftar en fjórum sinnum til hafnar á almanaksárinu greiða samkvæmt b. lið fyrir fimmtu komu og komur eftir það.
d) Úrgangsgjald: Skip og bátar sem eru undir 60 metra að lengd, eru ekki hafnsöguskyld og hafa varanlega viðveru í Grindavíkurhöfn skulu greiða fast mánaðargjald vegna eftirlits og umsýslu hafnar vegna móttöku á sorpi. Mánaðargjaldið skal vera kr. 7387 á mánuði.
e) Förgunargjald: Óski skipstjóri eða eigandi skips eftir að tekið verði á móti úrgangi frá skipinu skal hann hafa samband við viðurkenndan móttökuaðila skv. ábendingu hafnarinnar eða óska eftir því að höfnin annist móttöku á úrganginum. Lágmarksgjald hafnar fyrir móttöku á úrgangi er kr. 14.775 á hvern rúmmetra og lágmarksgjald einn rúmmetra. Kjósi skipstjóri eða eigandi skips að óska eftir þjónustu viðurkennds aðila þá greiðir hann kostnað við þá þjónustu. Skipstjóri og/eða eigandi skips ber ábyrgð á að útfylltu eyðublaði um magn og tegund sorps sé skilað til hafnarinnar, en misbrestur á því getur leitt til tilkynningar til Umhverfisstofnunar.
f) Förgunargjald: Skip sem undanþegin eru gjaldskyldu skv. 1. tl. 2. mgr. 17. gr. hafnalaga skulu eftir sem áður greiða fyrir losun sorps og förgun þess, sbr. 1. 17 málsgrein gjaldskrárinnar. (liðir 1- 6).
g) Skipstjóri eða eigandi skips sem fengið hefur undanþágu frá Umhverfisstofnun um skil á sorpi eða tilkynningum skv. 2. og 3. gr. gjaldskrár þessarar skal framvísa gildri staðfestingu þess efnis.
XII. Leiga á malarplönum bundnu slitlagi og hafnarþekju
18. grein
Malarplön og bundið slitlag og hafnarþekjur:
Gámar, veiðarfæri, kör, bátar, kerrur og annað sem nýtir malarplön og hafnarþekjur eða svæði með bundnu slitlægi til lengri eða skemmri tíma skal greiða kr. 130 á pr m2 á mánuði á viðkomandi malarsvæði. Geymsla á svæðum með bundnu slitlagi kr. 258 á pr m2 á mánuði. Geymsla á þekjum
777 pr. m2 Lágmarksgjald samsvarar 20 m2.
XIII. Um innheimtu og greiðslu hafnargjalda
19. grein
Hafnarstjóri sér um innheimtu allra hafnargjalda.
Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er heimilt að reikna hæstu lögleyfðu
dráttarvexti á skuldina.
20. grein
Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til
Grindavíkurhafnar vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa
hafnarstjóra upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar
nr. 326/2004 um hafnamál og afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og
skrásetningarskírteini skipsins, ef hafnarstjóri krefst þess vegna ófullnægjandi
upplýsinga frá skipstjóra, og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinunum uns gjöld
eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.
Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfninni og enginn skipstjóri
getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema
hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til
hafnarinnar.
21. grein
Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar, eða á
annan hátt sjóleiðis enda landleiðina, inn fyrir mörk hafnarinnar. Vörugjaldið reiknast
skipi til skuldar áður en skip hefur siglingu, nema annað sé sérstaklega um samið.
Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vörur án greiðslu vörugjalds á
hans ábyrgð.
Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir.
Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem
vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni
fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar á skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni
skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.
22. grein
Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að
undangengnum dómi.
Skipagjöldin eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingarfé.
Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðskuldum sbr. ákvæði 2. mgr. 21.gr.
hafnalaga nr. 61/2003. Grindavíkurhöfn er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir
greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.
23. grein
Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Grindavíkurhöfn er skylt að
innheimta virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3. gr. laga nr.
50/1988 um virðisaukaskatt. Undanskilin eru erlend fiskiskip og farskip er sigla til
útlanda.
XIV. Gildistaka
24. grein
Gjaldskrá þessi fyrir Grindavíkurhöfn er samþykkt af hafnarstjórn 14. nóvember 2022
skv. hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004 og
staðfest af bæjarstjórn xx.xx.2022
Gjaldskráin tekur gildi þann 01. janúar 2023 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli
Bæjarstjórn samþykkir gjaldsrkána samhljóða.
Þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar fyrir árið 2023 send bæjarstjórn til staðfestingar