Málsnúmer 2209015
Skipulagsnefnd - 105. fundur - 9.5.2022 00:00:00
Skipulagsfulltrúi leggur fram tillögu að óverulegri deiliskipulagsbreytingu á deiliskipulagi Hlíðarhverfis. Breytingin felur í sér skilmálabreytingu á hlutfalli bundinnar byggingarlínu einbýlis- og parhúsa í hverfinu, þ.e. að hlutfallið verði 30% í stað 60%.
Samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skal fara fram grenndarkynning vegna óverulegra breytinga á deiliskipulagi. Samkvæmt 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga er skipulagsnefnd heimilt að falla frá grenndarkynningu ef sýnt er fram á að breyting á deiliskipulagi varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Það er mat skipulagsnefndar að 3. mgr. 43 gr. skipulagslaga eigi hér við og er því fallið frá grenndarkynningu.
Samkvæmt 2. gr. viðauka 1.1 í bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Sviðsstjóra er falið að auglýsa deiliskipulagsbreytinguna í B-deild Stjórnartíðinda og senda skipulagstillöguna á Skipulagsstofnun.
Tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu á deiliskipulagi Hlíðarhverfis lögð fram. Breytingin felur í sér skilmálabreytingu á hlutfalli bundinnar byggingarlínu einbýlis- og parhúsa í hverfinu, þ.e. að hlutfallið verði 30% í stað 60%.