Málsnúmer 2209009
Skipulagsnefnd - 105. fundur - 9.5.2022 00:00:00
Fyrirspurn frá Leiguhúsnæðinu ehf. vegna Spóahlíðar 1 lögð fram. Í fyrirspurninni er óskað eftir eftirfarandi breytingum á skipulagi lóðar,
- Breyting á byggingarreit þannig að allar íbúðir hafi svalir og sérnotareiti í suður og eða vestur.
- Að bætt sé við 12 bílastæðum austan við byggingarreit.
Norðurhluti verði 3 hæðir og suðurhluti verði 2 hæðir, alls 18 íbúðir. Íbúðarstærðir verða 60-90 m². Við þessa breytingu verður garður hússins opinn til suðvesturs og nýtur betur sólar.
Skipulagsnefnd hafnar erindinu en óskar eftir að umsækjandi mæti á fund skipulagsnefndar til að fara yfir skipulag lóðarinnar.
Fyrirspurn frá Leiguhúsnæðinu ehf. vegna Spóahlíðar 1 lögð fram. Í fyrirspurninni er óskað eftir eftirfarandi breytingum á skipulagi lóðar,
- Breyting á byggingarreit þannig að allar íbúið hafi svalir og sérnotareiti í suður og eða vestur.
- Að bætt sé við 12 bílastæðum austan við byggingareit.
Norðurhluti verði 3 hæðir og suðurhluti verði 2 hæðir, alls 18 íbúðir. Íbúðastærðir verða 60-90 m². Við þessa breytingu verður garður hússins opinn til suðvesturs og nýtur betur sólar.