Málsnúmer 2208159
Skipulagsnefnd - 105. fundur - 9.5.2022 00:00:00
Viktor Jónsson sækir um byggingarleyfi vegna byggingar parhúss við Lóuhlíð 1-3. Óskað er eftir undanþágu frá grein í deiliskipulagi um lágmark 60% af hlið verði við bundna byggingalínu (við götu). Samkvæmt gögnum sem fylgja erindinu er hlutfall byggingar í bundinni línu út í götu um 58%.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin og er fallið frá kröfum um breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Með vísan til viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022 er um fullnaðarafgreiðslu að ræða.
Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
Viktor Jónsson sækir um byggingarleyfi vegna byggingar parhúss við Lóuhlíð 1-3. Óskað er eftir undanþágu frá grein í deiliskipulagi um lágmark 60% af hlið verði við bundna byggingalínu (við götu).