Málsnúmer 2208150
Bæjarstjórn Grindavíkur - 535. fundur - undefined
Til máls tóku: Ásrún, Hjálmar, bæjarstjóri, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Hallfríður, Gunnar Már og Birgitta Hrund.
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Samningur um umdæmisráð barnaverndar er lagður fram.
Bæjarráð vísaði samningnum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir samhljóða samning um umdæmisráð barnaverndar.
Erindi frá framkvæmdastjóra félags- og skólaþjónustu Rangárvalla og Vestur Skaftafellssýslu um þátttöku í samstarfi umdæmisráðs barnaverndar sveitarfélaganna á Suðurnesjum og Árborgar lagt fram.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að félags-og skólaþjónusta Rangárvalla-og Vestur Skaftafellssýslu taki þátt í samstarfi um umdæmisráð barnaverndar sveitarfélaganna á Suðurnesjum og Árborgar, með fyrirvara um samþykki þeirra sveitarfélaga.
Samningur um umdæmisráð barnaverndar er lagður fram.
Bæjarráð vísar samningnum til staðfestingar í bæjarstjórn.