Málsnúmer 2208081
Skipulagsnefnd - 105. fundur - 9.5.2022 00:00:00
Hrannar Jón Emilsson vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.
Þorbjörn hf. óskar eftir að breyta fiskvinnsluhúsi í veitingastað við Hafnargötu 8. Breyting á útliti, innra skipulagi og notkun. Samkvæmt þeim gögnum sem fylgja umsókninni verður húsið 2.011 m2 en samkvæmt deiliskipulagi má það vera 1.680 m2.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Er það mat nefndarinnar að stækkun á húsinu í fermetrum talið séu þannig að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Samþykkt á byggingaráformunum byggir því á 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Með vísan til viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022 er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
Þorbjörn hf. óskar eftir að breyta fiskvinnsluhúsi í veitingastað við Hafnargötu 8
Breyting á útliti, innra skipulagi og notkun.