Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2208066

Bæjarstjórn Grindavíkur - 533. fundur - undefined


Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Hjálmar, Birgitta Hrund, Helga Dís

Fjárhagsáætlun 2023-2026, Grindavíkurbæjar og stofnanir lögð fram til síðari umræðu.

Bókun
Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði og afskriftir hjá A-hluta árið 2023 er áætluð 505 milljónir króna og er það 11,3% af heildartekjum. Í A- og B-hluta er rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði og afskriftir áætluð 754 milljónir króna og er það 15,2% af heildartekjum.

Áætluð rekstrarniðurstaða áranna 2023-2026 er þessi í milljónum króna:
2023 2024 2025 2026 Samtals
A-hluti 274 307 186 62 829
A- og B-hluti 305 347 261 115 1.028

Heildareignir í samanteknum reikningsskilum A- og B-hluta eru áætlaðar í árslok 2023, 12.275 milljónir króna. Þar af er áætlað að handbært fé verði um 1.030 milljónir króna. Heildarskuldir og skuldbindingar eru áætlaðar 2.314 milljónir króna. Þar af er lífeyrisskuldbinding um 862 milljónir króna.
Langtímaskuldir eru áætlaðar um 910,6 milljónir króna í árslok 2023. Þar af eru langtímaskuldir við lánastofnanir 193 milljónir króna. Næsta árs afborgun langtímaskulda er 12,6 milljónir króna.
Skuldahlutfall Grindavíkurbæjar og stofnana sem hlutfall af heildartekjum er 46,7%.

Veltufé frá rekstri áranna 2023-2026 er eftirfarandi í milljónum króna:
2023 2024 2025 2026 Samtals
A-hluti 588 685 666 653 2.592
A- og B-hluti 799 900 912 866 3.477

Hlutfall veltufjár af heildartekjum A-hluta á árinu 2023 er áætlað 13,2%. Í saman-teknum reikningsskilum A- og B-hluta er það áætlað 16,1%.

Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum áranna 2023-2026 er þessi milljónum króna:
2023 2024 2025 2026 Samtals
A-hluti 1.045 1.276 1.450 1.244 5.015
A- og B-hluti 1.188 1.491 1.612 1.349 5.640

Fjármögnun framkvæmda og afborgana af langtímalánum, á þessu 4 ára tímabili, mun að mestu verða með veltufé þessara ára. Til viðbótar er gert ráð fyrir lántökum á tímabilinu, 650 milljónir 2025 og 600 milljónir 2026. Auk þess er gert ráð fyrir að handbært fé lækki um 1.450 milljónir kr. og verði 217 milljónir króna í árslok 2026.
Meirihluti B-, D- og U-lista.

Breytingatillaga 1 frá Miðflokknum:
Miðflokkurinn leggur til að bætt verði inn í fjárhagsáætlun 150 milljónum árið 2023 og 150 milljónum 2024 til að fara framkvæmdir við gervigras á aðalvelli knattspyrnudeildarnnar. Einnig leggjum við til að færa til 50 milljónirnar árið 2026 sem eiga að fara í viðhald á gervigrasi í Hópinu yfir á sumarið 2024.

Greinargerð
Það er þungt hljóðið í foreldrum krakkanna sem eru að æfa knattspyrnu í Grindavík og hefur verið lengi. Bærinn sem vill m.a. kenna sig við það að vera mikill íþróttabær er að draga lappirnar í framkvæmdum á gervigrasvelli og þurfa því foreldrar barnanna að aka með þau ca. 100km á sinn heimavöll, sem er staddur í öðru sveitarfélagi. Þetta vill Miðflokkurinn laga sem fyrst ásamt því að endurnýja gervigrasið í Hópinu sem er mjög illa farið.
Bæjarfulltrúar Miðflokksins

Breytingatillaga 2 frá bæjarfulltrúum Miðflokksins
Miðflokkurinn vill leggja til að farið verði strax í áfanga tvö í gatnagerð í Hlíðarhverfi á næsta ári og hann kláraður en í fjárhagsáætluninni er ekki gert ráð fyrir því.

Greinargerð
Engar lóðir eru lausar til byggingar íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu í dag og miða við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins virðist meirihlutinn bara nokkuð sáttur við þá stöðu.

Þær breytingar sem orðið hafa í atvinnulífinu í Grindavík gefa okkur tilefni til að ætla að framundan gæti verið tími atvinnuuppbyggingar í sveitarfélaginu. Sú uppbygging gæti einnig kallað á mögulega meiri og betri uppbyggingar hafnarmannvirkjanna. Því er það galið að meirihlutinn skuli draga lappirnar með möguleika á uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu þegar við sjáum flest að eftirspurnin eftir lóðum er þónokkur.
Bæjarfulltrúar Miðflokksins

Fundarhlé tekið kl. 16:45 - 17:15

Breytingatillaga 1 er felld með 4 atkvæðum meirihluta gegn 3 atkvæðum minnihluta.

Bókun
Fenginn var óháður aðili til að taka út gervigrasið í Hópinu og var niðurstaðan sú að með því að lagfæra grasið fyrir 2,5 milljónir þyrfti að Skipta grasinu út eftir 2 ár, áætlunin hljóðar uppá þær tillögur. Rekstrarkostnaður á nýju grasi er hærri en núverandi og með lagfæringum verður nýtingin betri.
Stjórn knattspyrnudeildar sendi erindi með óskum um endurnyjun grassins, eða ef grasinu yrði ekki skipt út þá yrði gert við það vel og fljótlega, sem við stefnum á að gera. Í þessari fjárhagsáætlun er jafnframt gert ráð fyrir 21,5 milljón í lýsingu í Hópinu ásamt 2,5 milljónum í lagfæringuna.
Varðandi gerfigras á aðalvellinum getum við tekið undir að hvimleitt er að aka í önnur sveitarfélög til að keppnis yfir vetrarmánuðina en í málefnasamningi meirihluta er sundlaug í forgangi.
Meirihluti B-, D-, og U-lista

Breytingatillaga 2 er felld með 4 atkvæðum meirihluta gegn 3 atkvæðum minnihluti.

Bókun
Fyrirhugað nýtt hverfi með tilheyrandi íbúafjölgun. Búið er að úthluta 1. áfanga í nýju Hlíðarhverfi okkar Grindavíkinga og hafa ber í huga að mikil íbúafjölgun kallar á mikla uppbyggingu í innviðum, áætlun íbúafjölda í fullbyggðu hverfi eru rúmlega 1.000 einstaklingar og má þá gera ráð fyrir að byggja þurfi skóla og leikskóla til að geta tekið vel á móti íbúum hverfisins.
Meirihluti B-, D- og U-lista

Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar samþykkir fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árin 2023-2026 með 4 atkvæðum meirihluta, 3 fulltrúar minnihluta greiða atkvæði á móti.

Fundarhlé er tekið 17:50 - 17:58

Bókun
Meirihluti bæjarstjórnar Grindavíkur B, D og U harmar að bæjarfulltrúar Miðflokksdeildar Grindavíkur kjósi á móti fyrirliggjandi fjárhagsáætlun. Vinna við fjárhagsáætlun var unnin að mestu leiti í samvinnu allra bæjarfulltrúa og starfsmanna ásamt því að áætlunin hefur fengið umfjöllun í fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar. Með því kjósa á móti áætluninni eru bæjarfulltrúar Miðflokksdeildar að kjósa á móti allir áætluninni, þar með talið fjárfestingarverkefnum og rekstraráætlun.
Meirihluti B-, D- og U-lista

Fundarhlé tekið 18:00 - 18:10

Bókun
Á vinnufundunum sem við áttum með meirihlutanum kom alveg í ljós að við vorum ekki sammála þeim í eignfærðum fjárfestingum og þau eiga að vita það enda höfum við ekki legið á skoðunum okkar hvað þau atriði varðar. Það er ákveðin hræðsla við lántökur hjá meirihlutanum og ákvarðanafælni að okkur finnst.

Við gerum okkur samt grein fyrir því að við erum í pólitík og erum í minnihluta og fáum því miður ekki ráðið meiru í þeirra fjárhagsáætlun og er alveg ástæðulaust fyrir okkur að samþykkja loforðalista meirihlutans. Við vorum með ákveðna stefnuskrá sem flestir kjósendur í Grindavík ákváðu að velja í síðustu kosningum og það er sá loforðalisti sem við viljum efna. Bókun meirihlutans segir að við höfnum allri fjárhagsáætluninni en því miður er ekki hægt að taka suma hluti útfyrir hana sem eru góðir og gildir þegar annað er ekki í lagi og þessvegna er okkur nauðugur sá eini kostur að hafna henni.
Miðflokksdeild Grindavíkur


Síðari umræða fjárhagsáætlunar 2023-2026.