Málsnúmer 2208013
Bæjarráð Grindavíkur - 1618. fundur - undefined
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bókun meirihluta B, D og U lista
Í málefnasamningi B, D og U, meirihluta bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar er kveðið á um að aðlaga eigi afslætti á fyrrihluta yfirstandandi kjörtímabils þegar litið er til þjónustu og gjalda fyrir börn og ungmenni.
Markmið meirihluta er að jafna aðgang barna og ungmenna ásamt því að lágmarka kostnað barnafjölskyldna. Á þetta við um gjöld vegna dagforeldra, leikskóla, skólasels, skólamáltíða og æfingagjöld leikskólabarna samanborið við æfingagjöld barna og ungmenna á grunnskólaaldri.
Meirihluti B, D og U óskar eftir að sviðsstjórar félagsþjónustu og fræðslusviðs ásamt sviðsstjóra frístunda og menningarsviðs taki saman gögn um áðurnefnd gjöld og vísi til umfjöllunar í viðeigandi fastanefndum, með það að leiðarljósi að lækka álögur og eða samræma gjöld við önnur sveitarfélög.
Málið er sett á dagskrá að beiðni meirihluta bæjarstjórnar.