Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2208005

Skipulagsnefnd - 107. fundur - 10.10.2022 00:00:00


Grenndarkynningu vegna deiliskipulagsbreytingar við Víkurhóp 63 er lokið án athugasemda. Grenndarkynning fór fram í samræmi við 2. mgr. 43.gr skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna.

Með vísan til viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022 er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Skipulagsnefnd vekur athygli lóðarhafa/umsækjanda á eftirfarandi: Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.


Grenndarkynningu vegna deiliskipulagsbreytingar við Víkurhóp 63 er lokið án athugasemda.