Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2208003

Bæjarráð Grindavíkur - 1618. fundur - undefined


Bæjarfulltrúarnir Birgitta H. Ramsey Káradóttir, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir og Gunnar Már Gunnarsson sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.

Nokkuð hefur verið um rafmagnsútslátt í Grindavík en yfirleitt er slíkur útsláttur rekinn til þess að byggðin er tengd með einum rafmagnsstreng HS Veitna frá Svartsengi. Búið er að gera allar þær ráðstafanir til að lágmarka útslátt með úrbótum á liðavernd. Grindavík leggur áherslu á að gegnum Landsnet verði sköpuð hringtenging.

Bókun meirihluta B, D og U lista
Í málefnasamningi meirihluta bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar er tekið fram að afhendingaröryggi rafmangs sé eitt af forgangsverkefnum á yfirstandandi kjörtímabili.
Í ljósi þeirrar flóknu stöðu sem upp er komin er nú enn mikilvægara að huga að raföryggi, bæði til að þjónusta íbúa sem og fyrirtæki.
Meirihluti B, D og U ítrekar ennfrekar að við fögnum þeim vendingum sem hafa átt sér stað í umræðum um mikilvægi innviða sveitarfélagsins, aðgang að heitu og köldu vatn til Grindavíkur, varafl í Svartsengi, varavatnsból á Suðurnesjum og ramagnsöryggi Grindavíkurbæjar.

Fulltrúar M lista taka undir ofangreinda bókun.


Málið er sett á dagskrá að beiðni meirihluta bæjarstjórnar.