Málsnúmer 2208002
Bæjarráð Grindavíkur - 1618. fundur - undefined
Bæjarfulltrúarnir Birgitta H. Ramsey Káradóttir, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir og Gunnar Már Gunnarsson sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram fundargerð samráðsfundar HS Orku, HS Veitna og Grindarvíkurbæjar, dags. 9. ágúst sl.
Bókun meirihluta B, D og U lista.
Í málefnasamningi meirihluta B, D og U er kveðið á um að eitt af forgangsverkefnum núverandi kjörtímabils sé öryggi vatnsbóla og að vatnsvernd verði með besta móti í Grindavík.
Með tilliti til þeirrar stöðu sem bæjarfélagið stendur frammi fyrir telur meirihluti nú enn mikilvægara að huga að vatnsöryggi og aðgangi íbúa og fyrirtækja að vatni.
Meirihluti lýsir yfir ánægju vegna framvindu mála og niðurstöðum samráðsfundar forsvarsmanna Grindavíkurbæjar, HS orku og HS veitna um innviði bæjarfélagsins.
Fulltrúar M lista taka undir ofangreinda bókun.
Málið er sett á dagskrá að beiðni meirihluta bæjarstjórnar.