Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2207082

Bæjarráð Grindavíkur - 1617. fundur - undefined


Fyrir liggur í samráðsgátt frumvarp til laga um sýslumann með það að markmiði að sameina öll sýslumannsembætti landsins í eitt.

Bæjaryfirvöld í Grindavík gagnrýna þá stefnu dómsmálaráðherra að leggja niður útibú sýslumanns í bænum. Gagnrýnin er óháð sameiningu embættanna í eitt embætti til að tryggja samræmda og góða þjónustu um allt land líkt og frumvarpið leggur til. Það vekur þó furðu að samhliða sameiningu embætta eigi að skerða þjónustu í Grindavík og mótmæla bæjaryfirvöld harðlega lokun útibúsins og um leið skerðingu á þjónustu við bæjarbúa, þvert á markmið frumvarpsins.
Í umsögn um frumvarpið er þess getið að samráð var haft við ákveðin sveitarfélög en óskiljanlegt er að ekki var haft samráð við Grindavík sem er það sveitarfélag ásamt Dalvík sem eiga að missa starfstöðvar sínar.

Í dag er sýslumaður með starfmann í 68% starfshlutfalli í bæjarfélaginu en frá byrjun desember hefur útibúinu verið lokað og hefur það valdið miklum óþægindum fyrir íbúa Grindavíkur.

Bæjaryfirvöld í Grindavík telja þetta vera gríðarlega mikla þjónustuskerðingu og lýsa andstöðu sinni við þessar fyrirhuguðu breytingar en í sumar hefur ríkið ákveðið að loka bæði útbúi Póstsins og útibúi sýslumannsins og er staðan því orðin sú að ríkið er með nánast enga þjónustu hér í Grindavík í ört stækkandi samfélagi.


Mál sett á dagskrá að beiðni Hallfríðar Hólmgrímsdóttur.

Svar frá Ásdísi Ármannsdóttur, sýslumanni vegna fyrirspurnar um lokunina:

sæll Jón
Því miður hefur lokun útibúsins í Grindavík staðið lengur en á horfðist í upphafi.
Það er flókið að þjálfa upp afleysingastarfsmann, enda um fjölþætt verkefni að ræða á skrifstofunni og því miður er ekki unnt að sjá af starfsmanni af aðalskrifstofu yfir sumartímann, vegna leyfa starfsfólks. Málið verður því skoðað í lok ágúst og verður þá vonandi unnt að opna skrifstofuna að nýju.

Ásdís Ármannsdóttir, sýslumaður

EN í samráðsgátt er hægt að koma með umsagnir um fyrirhugaða sameiningu sýslumannsembætta og þar er Grindavík (og Dalvík) ekki talin upp með fyrirhugaða skrifstofu/útibú.

Hér er hlekkur á samráðsgátt, frumvarpið um sameiningu sýslumanna og umsagnir þar:
mál nr. 122/2022 sjá hér: https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=3235