Málsnúmer 2207042
Bæjarráð Grindavíkur - 1617. fundur - undefined
Lögð fram beiðni um umsögn vegna umsóknar 22.10. ehf um leyfi til sölu áfengis á framleiðslustað að Hafnargötu 11.
Fyrir liggja jákvæðar umsagnir byggingafulltrúa í Grindavík, Slökkviliðs og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti umsóknina að fengnum umsögnum frá ofangreindum aðilum sem sýna fram á að skilyrði sem gerð eru fyrir útgáfu leyfisins eru uppfyllt.
Starfsemin er í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála.
Lokaúttekt hefur farið fram í húsnæðinu.
Starfsemin samrýmist fyrirliggjandi deiliskipulagi og skipulagsskilmálum svæðisins.
Starfsemin er í samræmi við ákvæði laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og laga um matvæli.
Kröfum um brunavarnir eru uppfylltar.
Fyrri umsögn ekki fullnægjandi skv. sýslumanninum á Suðurlandi.
Í meginmáli bókunar verður að vera tekin afstaða til töluliða 1-5, sbr. skilyrði 6. gr. a í áfengislögum.
Grindavíkurbæ er auk þess heimilt að skilyrða veitingu leyfis til smásölu á áfengi á framleiðslustað um afgreiðslutíma.