Málsnúmer 2207041
Bæjarráð Grindavíkur - 1616. fundur - 7.12.2022 00:00:00
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Farið yfir stöðuna á fyrirhuguðum framkvæmdum í nýjum íþróttasal á árinu 2022.
Stúka: Stefnt er að því að stúkan verði samþykkt í framleiðslu fyrir 15. júlí 2022. Uppsetning á stúku verður þá ekki fyrr en í nóvember/desember 2022, þ.e eftir að keppni í meistaraflokkum karla og kvenna hefst í haust.
Svalir: Tilboð frá Grindinni í svalir ofan við stúku og fjölmiðlarsvalir ofan varamannabekkja lagt fram. Bæjarráð samþykkir tilboð Grindarinnar og felur sviðsstjóra að ganga frá samningi við verktaka. Gert er ráð fyrir því að verktaki hefjist strax handa við undirbúning verkefnis.
Töflur/skjáir í sal: Gert er ráð fyrir að verðfyrirspurn fyrir töflur/skjái fari út í vikunni. Tilboð verða lögð fyrir bæjarráð þegar þau liggja fyrir á næstu vikum.
Hljóðveggur í sal: Sviðsstjóra falið að ræða við hönnuði um hljóðveggina sem valda truflun við leik og keppni í salnum. Útfærsla og kostnaður verður lagður fyrir bæjarráð þegar þær upplýsingar liggja fyrir.
Á fjárhagsáætlun ársins 2022 eru 78 milljónir. Ljóst er að fyrirhugaðar framkvæmdir fara fram úr þeirri áætlun. Sviðsstjóra falið að leggja fram viðaukabeiðni til bæjarráðs á næstu vikum, þ.e. þegar kostnaður við töflur/skjái og hljóðvegg liggur fyrir.
Farið yfir stöðuna á undirbúningi og framkvæmdum í nýjum íþróttasal á árinu 2022, þ.e. stúku, töflum, svölum og hljóðvegg. Gögn vegna málsins koma undir dagskrárliðinn á mánudagsmorgun.