Málsnúmer 2206140
Frístunda- og menningarnefnd - 117. fundur - undefined
Rætt um möguleikann á að taka upp styrkjakerfi í frístundastarfi fyrir börn og unglinga með lögheimili í Grindavík sem ekki stunda íþróttir hjá íþróttafélögum með samstarfssamninga við Grindavíkurbæ.
Grindavíkurbær styður nú þegar vel við íþróttastarf í Grindavík sem tryggir lág æfingagjöld.
Nefndin telur að styðja þurfi við foreldra barna sem ekki stunda íþróttir. Markmiðið væri að öll börn og unglingar geti tekið þátt í frístundastarfi óháð efnahag eða félagslegri stöðu.
Nefndin felur sviðsstjóra að afla frekari gagna.
Óskað eftir umræðu um frístundastyrki fyrir börn sem ekki stunda íþróttir.