Málsnúmer 2206084
Bæjarráð Grindavíkur - 1616. fundur - 7.12.2022 00:00:00
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sveitarfélagið Vogar óskar eftir athugasemdum vegna tillögu að breytingum á aðalskipulagi sveitarfélagsins og deiliskipulagi íbúðarsvæðisins Grænuborgar. Breytingin felst m.a. í að mögulegum íbúðum á svæðinu fjölgar um 400 og þéttleiki byggðar á svæðinu er aukinn.
Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við skipulagstillöguna á fundi nefndarinnar nr. 103 þann 7.júlí 2022.
Bæjarráð staðfestir bókun skipulagsnefndar um að ekki sé gerð athugasemd við skipulagstillöguna.
Sveitarfélagið Vogar óskar eftir athugasemdum vegna tillögu að breytingum á aðalskipulagi sveitarfélagsins og deiliskipulagi íbúðarsvæðisins Grænuborgar. Breytingin felst m.a. í að mögulegum íbúðum á svæðinu fjölgar um 400 og þéttleiki byggðar á svæðinu er aukinn.
Skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við skipulagstillöguna á fundi nefndarinnar nr. 103 þann 7.júlí sl. og vísaði afgreiðslu málsins til bæjarráðs.