Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2206082

Skipulagsnefnd - 102. fundur - undefined


Lilja Sigmarsdóttir vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu málsins.

Anna Karen Sigurjónsdóttir sækir um byggingarleyfi fyrir byggingu einbýlishúss við Arnarhlíð 5. Óskað er eftir undanþágu frá grein í deiliskipulagi um lágmark 60% af hlið verði við bundna byggingalínu (við götu). Skv. umsókn og teikningum sem henni fylgja er hlutfall byggingar í bundinni byggingarlínu 40%.

Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin og er fallið frá kröfum um breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Með vísan til viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022 er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.


Lóðarhafi við Arnarhlíð 5 óskar eftir byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi. Óskað er eftir undanþágu frá grein í deiliskipulagi um lágmark 60% af hlið verði við bundna byggingalínu (við götu). Skv. umsókn og teikningum sem henni fylgja er hlutfall byggingar í bundinni byggingarlínu 40%.