Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2206065

Skipulagsnefnd - 104. fundur - 8.8.2022 00:00:00


Á fundi skipulagsnefndar nr. 102 þann 20. júní sl. var sviðsstjóra falið að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn Há Brún ehf vegna Marargötu 3 fyrir lóðarhöfum við Marargötu og Ránargötu 4 og 6. Sótt var um að skipta húsnæðinu upp í 3 hluta. Grenndarkynningu er lokið án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Með vísan til viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022 er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.


Grenndarkynning vegna byggingarleyfisumsóknar fyrir Marargötu 3 er lokið án athugasemda.