Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2206048

Skipulagsnefnd - 104. fundur - 8.8.2022 00:00:00


Á fundi skipulagsnefndar nr. 102 þann 20. júní sl. var sviðsstjóra falið að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn Þórkötlu ehf. vegna Túngötu 5 fyrir lóðarhöfum við Túngötu 3, 6, 7,8 og Víkurbraut 32 og 34. Sótt var um leyfi til að innrétta litla íbúð í bílskúr ásamt smávægilegum útlitsbreytingum. Grenndarkynningu er lokið án athugasemda.

Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Með vísan til viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022 er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.


Grenndarkynningu vegna umsókanar um byggingarleyfi vegna Túngötu 5 er lokið án athugasemda.