Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2206023

Skipulagsnefnd - 124. fundur - 9.4.2023 00:00:00


Hrannar Jón Emilsson vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.

Sótt er um óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar við Hafnargötu 8 og Ægisgötu 4 og 4b. Breytingin fellst eingöngu í breyttum lóðamörkum.

Skipulagsnefnd samþykkir að um óverulega breytingu á deiliskipulagi sé að ræða og fara skuli með breytinguna skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda. Lóðarhafi við Ægisgötu 4 hefur samþykkt tillöguna. Samþykkt með fyrirvara um samþykki lóðarhafa við Seljabót 4b.

Skipulagsfulltrúa falin afgreiðsla málsins samkvæmt skipulagslögum.


Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna. Í samræmi við viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Skipulagsfulltrúa er falið að uppfæra deiliskipulagsuppdrátt og afgreiða skipulagsbreytinguna til Skipulagsstofnunar í samræmi við skipulagslög.


Deiliskipulagsbreytinga fyrir lóðirnar við Hafnargötu 8 og Ægisgötu 4 og 4b lögð fram. Breytingin fellst eingöngu í breyttum lóðamörkum.