Málsnúmer 2206022
Skipulagsnefnd - 102. fundur - undefined
Einherjar ehf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir raðhúsi við Fálkahlíð 7-11. Óskað er eftir undanþágu frá grein í deiliskipulagi um lágmark 60% af hlið verði við bundna byggingalínu (við götu). Skv. umsókn og teikningum sem henni fylgja er hlutfall byggingar í bundinni byggingarlínu 32%. Þá er hæð aðagólfs í báðum íbúðum til endana sett jafnt miðjuhúsinu, þ.e. hækkun og lækkun um 20 cm.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin og er fallið frá kröfum um breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Með vísan til viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022 er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
Lóðarhafi við Fálkahlíð 7-11 óskar eftir byggingarleyfi fyrir raðhúsi. Óskað er eftir undanþágu frá grein í deiliskipulagi um lágmark 60% af hlið verði við bundna byggingalínu (við götu). Skv. umsókn og teikningum sem henni fylgja er hlutfall byggingar í bundinni byggingarlínu 33-37%.