Málsnúmer 2205208
Skipulagsnefnd - 102. fundur - undefined
Byggingarleyfisumsókn frá Hallfríði Helgu Guðfinnsdóttur vegna Fálkahlíðar 4-6 lögð fram. Byggingaráformin eru ekki í samræmi við deiliskipulag hvað varðar hlutfall byggingar í bundinni línu við götu. Samkvæmt skipulagi á bindandi byggingalina að vera 60% af framhlið hús en er rúm 37%.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin og er fallið frá kröfum um breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Með vísan til viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022 er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
Lóðarhafi við Fálkahlíð 4-6 óskar eftir byggingarleyfi fyrir parhúsi. Óskað er eftir undanþágu frá grein í deiliskipulagi um lágmark 60% af hlið verði við bundna byggingalínu (við götu). Skv. umsókn og teikningum sem henni fylgja er hlutfall byggingar í bundinni byggingarlínu 48.1%.