Málsnúmer 2204053
Skipulagsnefnd - 102. fundur - undefined
Steinberg Reynisson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu málsins.
Grenndarkynningu vegna byggingarleyfisumsóknar við Stamphólsveg 4 er lokið án athugasemda. Sótt var um að breyta neðri hæð atvinnuhúsnæðis þannig að gisting verði á neðri hæð í stað verkstæðis og sýningarrýmis. Rými verður skipt í 2 gistieiningar með svefnherbergi, snyrtingu, alrými og tilheyrandi rými. Útlit húss breytist ekki. Húsnæðið verður áfram atvinnuhúsnæði, þ.e. umsækjandi ætlar að leigja húsið út í skammtímaleigu (minniháttar gistiheimili).
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Með vísan til viðauka 1.1. bæjarmálasamþykktar nr. 530/2022 er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
Grenndarkynningu vegna byggingarleyfisumsóknar við Stamphólsveg 4 er lokið án athugasemda.