Málsnúmer 2203129
Skipulagsnefnd - 99. fundur - 4.4.2022 00:00:00
HS Orka óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir kaldavatnslögnum, gufustofnum, bunustokk og tengdri jarðvinnu. Allar framkvæmdir eru í samræmi við skipulagsáætlanir og ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu. Jafnframt eru allar framkvæmdir utan verndarsvæða.
HS Orka vinnur að undirbúningi hönnunar fyrir mannvirki, sem falla undir byggingarleyfi. Innan skamms mun fyrirtækið sækja um byggingarleyfi fyrir nýjar byggingar og mannvirki, ásamt heimild fyrir niðurrifi.
Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdarleyfið og felur sviðsstjóra að gefa út framkvæmdaleyfið.
HS orka sækir um framkvæmdarleyfi vegna framkvæmda í tengslum við Orkuver 7 í Svartsengi.