Málsnúmer 2203128
Skipulagsnefnd - 99. fundur - 4.4.2022 00:00:00
HS Orka óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir rannsóknarholu HAL 3 og gerð aðkomuvegar að borteig. Allar framkvæmdir eru í samræmi við skipulagsáætlanir og ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu.
Framkvæmdasvæðið er innan skilgreinds iðnaðarsvæðis I9, sbr. Aðalskipulag Grindavíkur 2018-2032. Gert er ráð fyrir framkvæmdinni í deiliskipulagi svæðisins, sbr. deiliskipulag orkuvinnslu og iðnaðar á Reykjanesi í Grindavík sem var samþykkt í bæjarstjórn 22. febrúar 2022.
Skipulagsnefnd samþykkir framkvæmdarleyfið og felur sviðsstjóra að gefa út framkvæmdaleyfið.
HS orka sækir um framkvæmdarleyfi fyrir rannsóknarholu HAL3 við Reykjanesvirkjun.