Málsnúmer 2203111
Bæjarráð Grindavíkur - 1610. fundur - 5.3.2022 00:00:00
Á fundinn mættu Friðrik Þór Sigurðsson, Una Rós Unnarsdóttir og Vignir Berg Pálsson, fulltrúar í ungmennaráði. Einnig sátu fundinn sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, Elínborg Ingvarsdóttir, forstöðumaður Þrumunnar og Melkorka Ýr Magnúsdóttir starfsmaður í félagsmiðstöðinni Þrumunni og Birgitta Ramsey Káradóttir bæjarfulltrúi.
Rætt var m.a. um stöðu ungmennaráðs, félagsmiðstöðina Þrumuna, ungmennahús, ungmennagarðinn og íþróttasvæðið.
Ungmennaráð kemur til fundar kl. 17:00 og fundar með bæjarstjórn.