Málsnúmer 2203014
Bæjarráð Grindavíkur - 1607. fundur - undefined
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að samþykktum og reglum á skipulagssviði.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið áfram.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir almennri umfjöllun og umræðu um nokkur atriði í þeim samþykktum og reglum sem sviðið vinnur eftir, t.d.:
- Umsóknarfrestur lóða.
- Úthlutanir skipulagsnefndar á lóðum fjölbýlishúsa.
- Greiðsluskilmála gatnagerðargjalda.
- Ef til vill fleiri atriði sem þarf að ræða.
Málið verður einnig á dagskrá skipulagsnefndar mánudaginn 21. mars. 2022.