Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2203013

Bæjarráð Grindavíkur - 1606. fundur - 3.8.2022 00:00:00


Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Bókun frá fulltrúa B-lista:
Fulltrúi B lista leggur til að Grindavíkurbær búi sig undir og bjóði fram aðstoð í móttöku flóttamanna fjölskyldna frá Úkraínu.
Þó að húsnæði sé af skornum skammti í Grindavík, þá getur bærinn sem stendur vel ekki skorast undan við þessar hryllilegu aðstæður sem komnar eru upp.
Leggur fulltrúi B lista því til að fela sviðstjóra félagsmálasviðs að bjóða aðstoð Grindavíkurbæjar og vera tilbúin að móttaka flóttafólk ef til þess kemur.

Bæjarráð Grindavíkur samþykkir að leita til Grindvíkinga um laust húsnæði sem getur tekið við flóttafólki frá Úkraínu og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að vinna málið áfram.


Málið er sett á dagskrá að beiðni forseta bæjarstjórnar.