Málsnúmer 2202091
Bæjarráð Grindavíkur - 1605. fundur - 3.1.2022 00:00:00
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni um styrk til Körfuknattleiksdeildar UMFG vegna tekjutaps.
Bæjarráð bendir á að erindi eiga að koma frá aðalstjórn UMFG skv. gildandi samningi en ekki frá einstökum deildum. Sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs er falið að svara erindinu og vinna málið áfram.
Körfuknattleiksdeild UMFG óskar eftir styrk vegna tekjutaps.