Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2202058

Bæjarstjórn Grindavíkur - 528. fundur - 5.10.2022 00:00:00

Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Hallfríður, Hjálmar og bæjarstjóri.

Fyrirspurn Sæbýlis um lóð við Suðurgarð lögð fram.

Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á fundi nr. 101 þann 2. maí 2022 þar sem nefndin veitti sviðsstjóra heimild til að vinna breytingar á skipulagi lóðarinnar í samráði við Sæbýli að fengnu vilyrði bæjarstjórnar.

Erindinu var vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra að gera viljayfirlýsingu við Sæbýli ehf. um vilyrði fyrir lóð við Suðurgarð í samræmi við grein 3.3 í reglum um lóðarúthlutanir í Grindavíkurbæ. Endanleg úthlutun lóðarinnar fer fram að lokinni skipulagsvinnu líkt og reglurnar gera ráð fyrir.

Þá veitir bæjarstjórn sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs heimild til að vinna breytingar á skipulagi lóðarinnar í samráði við Sæbýli.

Fyrirspurn Sæbýlis um lóð við Suðurgarð til umræðu.