Málsnúmer 2202049
Skipulagsnefnd - 98. fundur - undefined
Guðmundur Pálsson vék af fundi við afgreiðslu og umfjöllun málsins.
Grenndarkynningu á byggingarleyfisumsókn frá Lárusi Guðmundssyni vegna Leynisbrúnar 4 er lokið án athugasemda.
Skipulagsnefnd samþykkir byggingaráformin. Byggingarleyfi er gefið út af byggingarfulltrúa þegar fullnægjandi gögn hafa borist embættinu.
Í samræmi við 6 gr. samþykktar um skipulagsnefnd í Grindavík þá er um fullnaðarafgreiðslu að ræða.
Grenndarkynningu vegna byggingarleyfisumóknar við Leynisbrún4 lauk 17.mars, án athugasemda.