Málsnúmer 2201084
Bæjarstjórn Grindavíkur - 525. fundur - undefined
Til máls tók: Hjálmar.
Skv. reglugerð nr. 230/2021 ber sveitarfélögum að færa byggðasamlög, sameignarfélög, sameignarfyrirtæki með ótakmarkaðri ábyrgð sveitarfélagsins í samantekin reikningsskil sín m.v. hlutfallslega ábyrgð sveitarfélagsins. Gildir þetta um einstaka liði rekstrar og efnahags óháð stærð eignarhlutarins. Skv. reglugerðinni skyldi þessi breyting taka gildi þegar á árinu 2021 og eiga við ársreikning þess árs og fjárhagsáætlun 2022 og svo áfram. Með hinni nýju reglugerð, nr. 14/2022, er sveitarfélögum heimilt að ákveða að þessi breyting taki gildi 2022. Jafnframt er þeim sveitarfélögum sem hyggjast nýta sér þessa heimild skylt að taka tilliti til þessa í fjárhagsáætlun 2022 með samþykkt viðauka eigi síðar en 1. júní nk.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að nýta heimild til frestunar sbr. reglugerð 14/2022.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs.