Málsnúmer 2201082
Skipulagsnefnd - 97. fundur - 3.7.2022 00:00:00
Grenndarkynning á deiliskipulagsbreytingu við Arnarhlíð 8 er lokið án athugasemda. Grenndarkynning fór fram í samræmi við 2.mgr. 43.gr skipulagslaga nr. 123/2020.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna. Í samræmi við 6 gr. samþykktar um skipulagsnefnd í Grindavík þá er um fullnaðarafgreiðslu að ræða.
Skipulagsnefnd vekur athygli lóðarhafa/umsækjanda á eftirfarandi:
Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við breytingu á innviðum (t.d. rafmagn, vatnslagnir og fráveita) á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.
Grenndarkynning á deiliskipulagsbreytingu fyrir Arnarhlíð 8 er lokið án athugasemda.