Málsnúmer 2201057
Bæjarstjórn Grindavíkur - 526. fundur - undefined
Til máls tók: Sigurður Óli.
Grenndarkynningu vegna umsóknar um gististað fyrir Víkurbraut 22 er lokið. Ein athugasemd barst og er sviðsstjóra falið að svara athugasemdinni á fundi skipulagsnefndar þann 21.mars 2022.
Skipulagsnefnd samþykkti erindið fyrir sitt leyti á fundi nefndarinnar nr. 98 þann 21. mars 2022. Vegna athugasemdar er farið fram á að umsækjandi hafi bílastæðin tilbúin samkvæmt teikningu áður en að útleigu kemur. Þá er umsækjanda bent á að breyta þarf eignaskiptasamningi vegna þessa.
Bæjarstjórn samþykkir umsóknina samhljóða en með sömu athugasemdum og skipulagsnefnd um gerð bílastæða og breytingar á eignaskiptasamningi.
Grenndarkynningu vegna umsóknar um gististað fyrir Víkurbraut 22 er lokið. Ein athugasemd barst og er sviðsstjóra falið að svara athugasemdinni.
Skipulagsnefnd samþykkti erindið fyrir sitt leyti á fundi nefndarinnar nr. 98 þann 21. mars 2022. Vegna athugasemdar er farið fram á að umsækjandi hafi bílastæðin tilbúin samkvæmt teikningu áður en að útleigu kemur. Þá er umsækjanda bent á að breyta þarf eignaskiptasamningi vegna þessa.
Erindinu er vísað til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.