Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 2201053

Bæjarstjórn Grindavíkur - 524. fundur - undefined


Til máls tóku: Sigurður Óli, Guðmundur, Páll Valur, Hjálmar og Hallfríður.

Lagt fram bréf frá Landsneti til Sveitarfélagsins Voga, dags. 8.12.2021, þar sem því er m.a. lýst yfir að skipulagsbreyting Voga sé ekki í samræmi við Svæðisskipulag Suðurnesja 2008-2028.

Grindavíkurbær hefur þegar samþykkt framkvæmdaleyfi vegna loftlínu í landi Grindavíkur.

Bókun fulltrúa S-lista.
Samkvæmt lögum þessa lands veita sveitarfélögin í landinu framkvæmdaleyfi af því tagi sem Suðurnesjalína 2 er og fara að auki með skipulagsvald í samræmi við ákvæði stjórnarskrá lýðveldisins. Með því lagafrumvarpi sem lagt var fram á alþingi þann 19. janúar síðastliðinn þar sem framsögumaður var 6. þingmaður Suðurkjördæmis Ásmundur Friðriksson er hreinlega verið að taka skipulagsvaldið af sveitarfélögunum sem í hlut eiga og Suðurnesjalína 2 liggur um.
Fulltrúi S-lista tekur heilshugar undir með Ágeiri Eiríkssyni bæjarstjóra sveitarfélagsins Voga sem m.a segir í pistli á heimasíðu bæjarins þann 21. janúar síðastliðinn.
„Það er mikill ábyrgðarhluti af hálfu Alþingis að svipta sveitarstjórn skipulagsvaldi. Ég hvet því flutningsmenn frumvarpsins sem og þingmenn alla til að staldra við og leita annarra lausna á viðfangsefninu en að þvinga fram ákvörðun í málinu með lagasetningu. Við slíkar aðgerðir sitja allir eftir með sárt enni og óbragð í munni. Traust sveitarstjórnarstigsins og löggjafavaldsins er í húfi“.
Að því sögðu þá vonar fulltrúi S-lista að þessu deilumáli ljúki sem fyrst og á farssælan hátt íbúum á Suðurnesjum sem og annarstaðar á landinu til heilla.
Páll Valur, fulltrúi S-lista.


Borist hefur erindi frá Landsneti þar sem því er m.a. lýst yfir að skipulagsbreyting Voga sé ekki í samræmi við Svæðisskipulag Suðurnesja 2008-2028.